Skæralyfta heim að dyrum á Akureyri
Óli keyrir lyftuna heim að dyrum á Akureyri fyrir 13.640 kr. hvora leið. Þú getur líka sótt hana sjálf(ur).
Heimsending eða sótt
Fá senda
13.640 kr. hvora leið, 27.280 kr. báðar leiðir. Óli kemur með lyftuna og sækir hana aftur.
Sæki sjálf(ur)
Sótt á Akureyri án aukagjalds. Þarf kerru með 2,3 m palli sem ber 1.500 kg. Óli sendir staðsetningu og tíma með staðfestingunni.
Verðið er það sama hvar sem er í bænum. Þú velur heimsendingu eða að sækja lyftuna þegar þú bókar.
Svona gengur afhendingin
Þú bókar á netinu eða hringir
Bókunin fer til Óla sem beiðni og ekkert er greitt á netinu. Síminn er 699 1231.
Óli staðfestir
Samdægurs eða næsta virka dag. Þú greiðir með millifærslu fyrir afhendingu eða við afhendingu.
Lyftan kemur heim að dyrum
Yfirleitt er hægt að afhenda daginn eftir. Óli fer yfir notkunina við afhendingu og engin vinnuvélaréttindi þarf.
Óli sækir hana aftur
Þegar leigutímanum lýkur. Skiladagurinn er ekki rukkaður.
Í fjölbýli: mældu leiðina inn
Lyftan þarf að komast frá götunni að verkinu, um anddyri, ganga og dyr. Mældu þrengsta og lægsta staðinn á leiðinni áður en þú bókar.
- Breiddin. Mældu opið milli karma, ekki hurðina sjálfa. GS-1930 þarf minnst 77 cm og GS-1432m minnst 82 cm.
- Hæðin. Í flutningi er GS-1930 2,16 m á hæð, eða 1,80 m með handriðin niðri. GS-1432m er 1,88 m. Athugaðu lægstu dyrnar, og lofthæðina í bílakjallara ef leiðin liggur þar um.
- Þyngdin. GS-1930 vegur 1.456 kg og GS-1432m 900 kg. Það skiptir máli á rampi, á milligólfi og á plani yfir kjallara. Ef þú ert ekki viss, hringdu í Óla áður en þú bókar.
Í reiknivélinni seturðu inn málin á dyrunum og sérð hvor vélin kemst.
Á forsíðunni eru skæralyftur til leigu á Akureyri bornar saman: hæð, mál og verð. Húsfélög finna meira á síðunni fyrir húsfélög.
VélarnarBáðar gerðirnar eru til leigu á Akureyri. Öll verð, líka fyrir lengri leigu, eru í verðskránni. | Upp í 6,30 m inniog 5,66 m útiGenie GS-1432m, 1 vél | Upp í 7,85 m inniog 6,47 m útiGenie GS-1930, 4 vélar |
|---|---|---|
| Verð með VSK | ||
| Dagur | 8.680 kr. | 11.160 kr. |
| Vikagildir frá 4 dögum | 29.760 kr. | 34.720 kr. |
| Bóka | Bóka GS-1432m Allt um GS-1432m | Bóka GS-1930 Allt um GS-1930 |